Töff, töff, töff ! Seinustu dagar
hafa verið mjög uppteknir hjá mér þannig ég hef ekkert verið
að blogga hérna. Ég vil byrja á því að senda afmæliskveðju
til Þórunnar og Þóru sem áttu nú afmæli fimmtudaginn
27.janúar. Við gerðum nú margt skemmtilegt þennan dag, fórum
á barinn og fleira...... :] Íris var
mjög skrautleg

Í vikunni réðust strákarnir á mig og
Írisi þar sem við lágum í rúminu okkar rosalega kósý að
lesa, þeir hentu okkur báðum í sturtuna og við urðum
rennandi, komu með örugglega 10 fullar skúringafötur af vatni
og helltu yfir okkur. Allavega var herbergið okkar alveg á
floti ! En Ingi var svo góður og þreif þetta allt upp
;]
Fimmtudagurinn 2.febrúar var eitt rugl. Við stelpurnar, ég,
sólborg, vildís og signý, fórum út og fórum smá á barinn.
Síðan lá leið okkar inná vistina gegnum gluggann hjá strákunum. Það
gekk bara eins og í sögu. Við vorum búnar að plana að vaka alla
nóttina og fara svo í bakaríið klukkan 7. Við fórum inn í herbergi
til Stúlla og Gunna og vorum þar alla nóttina að rugla í
strákunum. Við sofnuðum smá en vöknuðum hressar klukkan 7 og fórum
í bakaríið ;] Mættum svo í skólann klukkan 8 og ég að fara í
dönskupróf, já ég er að segja ykkur það að ég hef aldrei
verið svona góð í dönsku á ævi minni.
Ég og Ása erum búnar að finna
rómantískasta stað í heimi. Ég veit ekki hvar hann er.
Þorrablót í kvöld. Ég er farin að hlakka mikið til,
alltaf gaman að skemmta sér með gamlingjunum ;] Silvía Nótt keppir
í kvöld í Eurovision dæminu. Snilldar lag.
"Hinar tíkurnar eru bólugrafnar en ég er hrein
mey"
Tékkið á klobbadjúsþáttunum okkar. Þeir eru að
meikaða.
Fanney -
goodbye